Velkomin á Fíknó !
Þú ýtir á litlu myndirnar hér að ofan til að:
Hausinn: Sjá linka á fólk
Taskan: skoða myndalinka
Fæturnir: skoða gamlar færslur
Bakið: Lesa bloggið mitt og COMMENTA
DONT'T WORRY BE HAPPY
Wednesday, October 12, 2005
7:38 PM
Takk fyrir klukkuna Sigrún !
Var klukkuð og þarf víst að uppljóstra 5 hlutum um sjálfa mig...
1# tja..Ég er kvikmyndastjarna í dulargervi þar sem ég lék í sjónvarpsmyndinni (og stórmyndinni) LAGGÓ árið 1995 í leikstjórn Jóns Tryggvasonar. Ég var ekki eina stjórstjarnan í myndinni heldur skartaði hún einnig vel þekktum Íslendingum á borð við Helgu Brögu (í hlutverki móður minnar) og Helga Björnssyni (í hlutverki trillukarls sem réri með "föður" mínum.
2# Ég hef æft íþróttir ! Meiraðsegja sparkað í bolta. 6 ára gömul fór ég á fótboltanámskeið hjá KR (bjó þá í Vesturbænum). Æfði Tennis ca' 10 ára og hætti þegar ég átti að mæta á æfingar 5 sinnum í viku - full oft og líka langt að fara fyrir 10 ára. Svo ætlaði ég alltaf (þegar ég var svona 7-9 ára)að æfa körfu en þá var ekki til kvennaflokkur í Fjölni og ekki vildi ég æfa með strákunum...
3# Ég á systur. Ég á meirað segja systur sem heitir það sama og ég. Helga.
4# Ég hef einu sinni hlotið beinbrot. Þegar ég var 6 ára höfuðkúpubrotnaði ég. Eða öllu heldur var ég höfuðkúpubrotin. Stóri BÉ, þá 8 ára, gerði sér lítið fyrir og höfuðkúpubraut mig. Læknirinn sagði að ef ég yrði í kringum mikil læti hefði ég getað orðið þroskaheft (í versta falli), en ég slapp vel :)
5# Hef spilað á hljóðfæri. Lærði á píanó í hálft ár en skipti síða yfir í Celló og lærði á það í 3 ár. Fyrir þá sem ekki vita er Celló knéfiðla = stór fiðla sem maður situr með og spilar á með boga !
Þá vitið þið það ! Ég klukka "The Brownies" !
you make my life perfect- whatever !!!
Get awesome blog templates like this one from BlogSkins.com