Velkomin á Fíknó !
Þú ýtir á litlu myndirnar hér að ofan til að:
Hausinn: Sjá linka á fólk
Taskan: skoða myndalinka
Fæturnir: skoða gamlar færslur
Bakið: Lesa bloggið mitt og COMMENTA
DONT'T WORRY BE HAPPY
Tuesday, September 06, 2005
10:00 PM
Good Old Times
Vegna fjölda áskoranna ákvað ég að skella annarri færslu hérna inn....en örugglega allir hættir að lesa síðuna mína núna þar sem hún hefur verið óvirk kannski full-lengi.
Þegar ég ætlaði að fara að blogga núna rakst ég gamalt "draft" sem ég kláraði aldrei og þ.a.l. birti aldrei...En hér kemur etta...Enjoy
08.júlí 2005
Keyrði moped í fyrsta skipti um daginn. Eða skellinöðru einsog það heitir víst á móðumálinu. Það var svaka fjör. Halla á það og við þurftum að sækja það eitthvert lengst í burt. Svo ég keyrði það til baka sem var bara stemmari, fór alveg uppí 70 km sko. hehe. Svo var ég með hjálm með engu gleri, þetta var svona meira einsog reyðhjálmur eða eitthvað, hann er sko venjulega ekki með gleri.
Þið vitið þegar maður er að keyra bíl, og flugurnar klessast alltaf á framrúðuna og stuðarann ? - ÉG VAR FRAMRÚÐAN, þannig að ég fékk nokkrum sinnum svona klessu framan í mig. Og svo punkturinn yfir I-ið : Það byrjaði að Rigna. Og það er skal ég segja ykkur ekkert rosalega létt að sjá út í grenjandi rigningu, þar sem ég hef engar rúðuþurkur á augunum. OG ÉG bara í þunnum íþróttabuxum og þunnri hettupeysu. Var alveg gegnsósa þegar við komum í hús. Nærfötin og allt blautt sko. En þetta var mjög gaman. Reynda getur verið stórhættulegt að vera á svona hjólum í rigningu víst, skilst mér, þannig að ég þurfti að passa mig soldið í beygjum og svona. Svo þegar það rignir fyllist allt af froskum. Stórir og litlir, rosalega sætir. Svo maður þarf að passa sig líka að keyra ekki yfir þá. Ætla að reyna bráðum að farað drita myndum á netið. Það tekur bara svo mikinn tíma og ég hef ekkert alltof mikið af honum.
you make my life perfect- whatever !!!
Get awesome blog templates like this one from BlogSkins.com