Velkomin á Fíknó !
Þú ýtir á litlu myndirnar hér að ofan til að:
Hausinn: Sjá linka á fólk
Taskan: skoða myndalinka
Fæturnir: skoða gamlar færslur
Bakið: Lesa bloggið mitt og COMMENTA
DONT'T WORRY BE HAPPY
Tuesday, August 02, 2005
6:01 PM
Å nei! Deg igjen...
Indianarane kjem!
Jeg bor alene...
oss.to@kino
Og du vil?
Hils alle kjente!
Jeg tar et hint
Inkassovarsel
Gaffel i øyet...
Þetta eru skilaboð sem maður fær í kóktöppum á glerflöskukóki. I dag fékk ég "Inkassovarsel" í kóktappanum mínum - sem á eiginlega vel við því ég á eftir að borga húsaleigu-gíróinn. Ég eiginlega týndi honum og er að spá í að borga hann bara þegar ég fæ útborgað núna 13 ágúst, mánuði of seint (betalingsfrist 18.06.05)
En ég allavega fíla þessa kóktappa, þeir eru alltaf við hæfi, vaknaði einu sinni að deyja út þynnku og í kóktappanum stóð "Gaffel i øyet...".
Ég átti afmæli síðasta fimmtudag, 28.júlí. Hafði sofið heima hjá frænsku um nóttina og vaknaði við að hún kom heim með Diam súkkulaðihrísköku sem er GEÐVEIKT GÓÐ. Heitir "Almondy Mandelkake med DAIM®" mmmmm. Er hún seld heima? Annars tek ég nokkrar með heim sko.
Ekki búnað vera mikið með Nordjobburunum i det siste, bara vinna, lesa og sofa. En Ætlum að hittast á fimmtudaginn að spila Volleyball við Sognsvann, sem er vatn hérna rétt hjá.
Hérer kort af þar sem ég á heima. Svona nærsta nágrenninu. Íbúðin mín er þar sem teiknibólan er. Þar bý ég í 4.herbergja íbúð með tveim strákum, Ole og Svein. Svo er stelpa sem á fjórða herbergið en hún er að vinna út á landi í sumar svo ég kem ekki til með að hitt hana neitt.
Risa stóra húsið við Kaj Munks vei er Ullevål stadion. Það er fótboltaleikvangur, opið að ofan. Geðveikt stórt. Þar eru fara flestir landsleikir Norska landsliðsins fram og oft stórir Tónleikar. R.E.M. voru t.d. um daginn (eiginlega fyrir svona mánuði). Vegurinn sem er þvert yfir kortið (byrjar uppi, endar niðri) fer alveg niður til Oslo Sentrum, það er soldill spölur en allt niðurímóti. Annars tek ég yfirleitt T-banen (neðanjarðarlesti), hann stoppar við Ullevål stadion. Í gærkvöldi var rafmagnslaust í Oslo og það þýðir að T-baninn, sporvagnarnir og lestirnar ganga ekki. Ég hélt það væri bara heima, hélt Svein hefði slegið eitthverju út - en svo var þetta eitthvað mjög stórt strømbrudd í rafstöðinni hérna rétt hjá. 19:30-20:16 var allt rafmagnslaust á mjög stóru svæði í Osló. Það er engin gluggi á baðinu þannig að ég þurfti að sturta mig í myrkrinu. En T-baninn gekk ekki eðlilega restina af kvöldinu. Bara einstaka vagnar og þeir sem fóru keyrðu MJÖÖÖÖG hægt og stoppuðu oft inní göngum og svona. Þ.a.l. var ég 75 min. of sein í vinnuna. Tók mig 2 tíma að komast þangað.
Þegar T-banavagninn stoppaði inní göngum tók maður eftir að margir urðu órólegir. Nýbúið að bomba T-banann í London og ekkert allir sem vissu hvað hafði gerst.
En vinnan mín. Er kannski ekkert búnað segja frá henni? En ekkert mikið að segja heldur. Þetta er svona stöð einsog þegar maður keyrir uppúr Hvalfjarðargöngunum.Kallaðar "Bomstasjoner" Ef ég er á rólegri stöð reyni ég að nota tímann til að læra. Bomstasjoner eru allan hringinn í kringum Osló og allir sem keyra inní Osló þurfa að borga. HÉR er Osló kort sem sýnir allar bomstasjoner í Osló sem eru 18 talsins. Ég bý svona mitt á milli nr.7 og Tåsen (sjá kort).
En klukkan er orðin kortér yfir 9, svo ég þarf að drífa mig þarf að taka T-banann í vinnuna, á næturvakt í nótt...
Ætla kannski bráðum að tékka á að setja inn myndir...
Bæ !
you make my life perfect- whatever !!!
Get awesome blog templates like this one from BlogSkins.com