Velkomin á Fíknó !
Þú ýtir á litlu myndirnar hér að ofan til að:
Hausinn: Sjá linka á fólk
Taskan: skoða myndalinka
Fæturnir: skoða gamlar færslur
Bakið: Lesa bloggið mitt og COMMENTA
DONT'T WORRY BE HAPPY
Friday, July 08, 2005
1:10 PM
Osló-Moss-Halden
Þegar ég var í Halden síðast (þrið-föst.) gleymdi ég hleðslutækinu fyrir tölvuna mína, svo ég hef ekki getað verið á netinu og ekki getað sent verkefni eða neitt.
Fór svo aftur til Halden á þriðjudag til að sækja dótið mitt.
Hitti um daginn mann með mestu áráttuhegðun sem ég hef heyrt um...Hann þarf ALLTAF að vera að þvo sér um hendurnar og koma helst ekki við neitt. Ef hann kemur við eitthvað þarf hann að sjálfsögðu að þvo sér um hendurnar. Og það er enginn smá handaþvottur. Hann notar Ajax og allan pakkann og það verður sko ALLT blautt í kringum hann. Hann ferðast með Ajax með sér, hvert sem er ... Á HJÓLI. Þegar hann er í fangelsi fær hann líka sér meðferð. Fangaverðirnir koma aldrei inní klefann hans - því hann er svo hræddur við sýkla og heldur að það komi sýklar með fangavörðunum. Og ef fangavörður fer inn til hans þá BRJÁLAST hann, missir það alveg, og hann er enginn písl sko. (hjá venjulegum fanga kemur fangavörður inn minnst einu sinni á dag) Svo fá fangar alltaf kortér í sturtu en hann fær heilan klukkutíma.
Þetta er kunningi hennar Höllu frænku - hún á fullt af furðulegum kunningjum. Segi kannski frá fleirum seinna.
Þegar ég fór til Halden núna á þriðjudaginn fekk ég far með Höllu frænku til Moss (sem er mitt á milli Oslo og Halden) og tók lestina þaðan til Halden. OG eins á bakaleiðinni. Þá tók ég bara lestina frá Halden til Moss og fékk far með Höllu rest. Fékk lánaðan geggjað flottan Rottweiler hund með mér til Halden. Mjög gaman. Og svo þegar ég var komin aftur til Moss með lestinni og var að bíða eftir Höllu bað hún okkur að labba á móti sér uppað bensínstöðinni...Þegar við (ég og hundurinn sem heitir Mús) vorum að labba byrjaði auðvitað að rigna - í eina skiptið síðan ég kom til Noregs og þá vildi auðvitað svo vel til að ég var í hvítum hlýrabol og svörtum brjóstarhaldara....
Nóg af þvaðri, ég ætla að farað sækja Mus (hundinn) og fara niðrí bæ og gera við neglurnar mínar.
Ha de'
you make my life perfect- whatever !!!
Get awesome blog templates like this one from BlogSkins.com