Velkomin á Fíknó !
Þú ýtir á litlu myndirnar hér að ofan til að:
Hausinn: Sjá linka á fólk
Taskan: skoða myndalinka
Fæturnir: skoða gamlar færslur
Bakið: Lesa bloggið mitt og COMMENTA
DONT'T WORRY BE HAPPY
Monday, July 11, 2005
4:26 PM
Osama Bin Laden og sólskinsveður !
Það er búið að vera fáránlegur hiti hérna. Í fyrradag voru eitthver 37 stig. Í morgun, um 11 leytið voru 28 stig og síðan þá hefur hitnað mikið (kl. er 4 núna) - Þetta er svakalegt maður. Á morgun ætla ég sko að taka daginn snemma, skella mér útí eyju og sóla mig þar og baða í sjónum, já eða fara bara á strönd. Er ekki að vinna fyrr en á föstudaginn svo ég hef smá tíma. Þarf reyndar að læra GEGGJAÐ mikið þannig að ég í raunninni hef engan tíma. Er tíminn ekki afstæður ?
Rottweilerinn minn, Mus, er farinn aftur heim til sín í bili, en ég fæ hana aftur bráðum :D - Frekar tómlegt hérna án hennar. Hún er alveg fyndin. Svo þegar hún sefur fær hún stundum martraðir, hehe já hunda dreymir líka illa, og þá kemur eitthvað svona mjög hræðslulegt ýlfur frá henni, en hún er samt sofandi. Svo ef maður strýkur henni rólega þegar hún er með martröð þá hættir hún að ýlfra. Hehehe awwww. Hún er soldið athyglissjuk og finnst sérstaklega gaman að standa útá miðri götu. Alveg búnað fatta það að þá fær hún fulla athygli. Ég að kalla á hana að fara af götunni, Bílarnir stoppa fyrir henni og allir horfa á hana - svo loksins þegar hún ákveður að fara af veginum þá svona lallar hún alveg LÖÖÖTUHÆGT yfir veginn með svona svip "ha varstu að segja eitthvað ?"
Í T-bananum áðan alltíeinu mundi ég eftir hryðjuverkaárásunum í London...hmmmm... og fór að pæla aðeins í þessu sko. Það var á forsíðum blaðanna hérna í gær held ég að Osló væri búið að gera ráðstafanir ef til hryðjuverka kæmi og um daginn var eitthver æfing, ekki "brunavarnaæfing" heldur "hryðjuverka-varnaæfing" í T-bananum. Og ég fór að spá ? Hvaða öryggi eru þeir eiginlega að tala um ? Á lestarstöðvunum hérna eru max nokkrir securitas verðir sem rölta í hringi. ekkert mál að fara uppí lest með sprengju á sér og sprengja hana eitthversstaðar á leiðinni. (þ.e.a.s. ef maður ætti sprengju) - Securitas verðirnir eru bara á stærstu stöðvunum, og þeir eru ekki sprengjusérfræðingar og eru ekki að leita að sprengjum á fólki, þeir eru bara til staðar ef eitthver dópisti er með vesen eða eitthvað. Og svo er líka alveg hægt að fara í lestina eitthversstaðar á lítilli stöð og sprengja svo sprengjuna þegar lestin er komin niðrí bæ.
Segjum sem svo að Osama Bin Laden vilji ráðast á Osló, hverjar eru líkurnar á að hann geri nákvæmlega það sama og í London. Sko ef við við berum saman 11.september og hryðjuverkin í London ? ekki mikið líkt nema þetta er bæði samgöngutæki. Osama gerði flugárás og allir misstu sig í að herða flugöryggi...og bombaði svo núna lestir og strætó - Nú eru auðvitað öll lönd að herða öryggi á T-bananum (árangurslaust ef marka má stöðuna hér) en ég STÓRefast um að hann Binni fari að sprengja upp T-banann í öðru landi á næstunni. Hann vill jú hitta beint í mark, þar sem þjóðinn finnur mest fyrir því og þar sem hún á SÍST VONA Á ÞVÍ.
HEY ég er komin með smá lit á hendurnar...múhahaa...en ég ætla að farað læra og á morgun verður það bara stutt pils og bikinitoppur.
Skrifaðu komment druslan þín !
:D
you make my life perfect- whatever !!!
Get awesome blog templates like this one from BlogSkins.com