Velkomin á Fíknó !
Þú ýtir á litlu myndirnar hér að ofan til að:
Hausinn: Sjá linka á fólk
Taskan: skoða myndalinka
Fæturnir: skoða gamlar færslur
Bakið: Lesa bloggið mitt og COMMENTA
DONT'T WORRY BE HAPPY
Thursday, June 02, 2005
8:14 PM
We had joy, we had fun, we had seasons in the sun.
Sumrið er klárlega komið. Allir eitthvað svo glaðir og bjartsýnir.
Ég flýg út eftir akkúrat viku núna!! Örlítið spennt. Held ég hafi aldrei verið búin að setja inn ferðaplanið hingað inn :
Fimmtudagurinn 9.júní : Flýg til London og tek lest til Liverpool
Laugardagur 11.Júní : Flýg frá Liverpool til Amsterdam
Miðvikudagur 15.Júní : Flýg frá Rotterdam til Noregs.
Þegar þangað er komið fer ég að hitta stelpu sem vinnur hjá Nordjobb og hún fer með mig og sýnir mér hvar ég á að búa og ég fæ lykil og svoleiðis. Jón Fannar frændi sækir mig vonandi á flugvöllinn og keyrir mig að hitta hana og svo reikna ég með að fara með Jón Fannari til Halden og keyra til Svíþjóð til að fá Kebab-pizzu. Hitti kannski gamla kunningja og skjótast svo aftur til Osló þar sem ég heimsækji Höllu frænku og Tryggva bróður áður en ég fer að vinna. Úff það verður sko nóg að gera.
Síðan verð ég að taka 12 einingar í sumar (fjarnám í FÁ) og þá útskrifast ég næsta vor.
Var að skella inn nokkrum myndum sem eru hér komust samt ekki allar svo ég set þetta ekki inní myndalinkana. Ætla frekar að setja allar myndirnar inní annað almbúm. En endilega kíkið ;)
you make my life perfect- whatever !!!
Get awesome blog templates like this one from BlogSkins.com