Velkomin á Fíknó !
Þú ýtir á litlu myndirnar hér að ofan til að:
Hausinn: Sjá linka á fólk
Taskan: skoða myndalinka
Fæturnir: skoða gamlar færslur
Bakið: Lesa bloggið mitt og COMMENTA
DONT'T WORRY BE HAPPY
Tuesday, June 28, 2005
12:02 PM
Noregur er ágætur
Lenti reyndar í smá vesen með að komast í net af því að noregur er svona 10 árum á eftir hvað tækni varðar. Þráðlaust net er mjög sjaldgæft hérna, en mér skilst samt að það sé komið í flesta framhaldsskóla. En ekki stúdentagarða eða kaffihús eða neitt. Heima getur maður farið á venjulegt kaffihús með tölvuna sína og verið á netinu og í Amsterdam er þráðlaust net á McDonalds...það er ekki til hér. Netkaffihús eru stór herbergi með fullt af tölvum (gömlum borðtölvum) og stundum hægt að kaupa kaffi þar...
Flókinn minn flaug út í rok um daginn og týndist... en stelpa sem fann hann og hann var komin heim sólarhring seinna-sem betur fer. Hann saknar mín helling og alltaf þegar mamma opnar hurðina inní herbergi þá er hann kominn þangað að leita að mér. En nóg um hann.
Það er búið að vera ágætt hér. Ég er nýkomin með netið svo ég þarf að vera dugleg að læra.
Er núna í Halden í heimsókn hjá Jón Fannari frænda. Við skruppum til Svþjóðar í fyrradag og keyptum okkur kebab-pizzu í Strömstad, sem er besta pizza í heimi. Svo stoppuðum við í Svínasundi (sem er líka í svíþjóð) og keyptum í matinn og soldið nammi. Nammi í Svíþjóð er fáránlega ódýrt.
Svo er maður búnað vera sötra bjór eða rauðvín eða bæði eiginlega öll kvöld hérna í Halden. Já og svo er Jón Fannar lærður kokkur og ætlar að bjóða mér í mat áður en ég fer heim og elda eitthvað gott fyrir mig.
Jón Fannar á nokkra gullmola, einsog þegar hann ætlaði að segja á ensku "Ég er kokkur" sagði hann "I'm a KOKK". Og svo annað skipti þá var hann að tala við eitthvern strák
Strákur: Ætliði að grilla í kvöld ?
Jón Fannar: Nei ég þarf að vinna á morgun.
hehehehe. Jón Fannar var ekkert að grínast, var ekki alveg að sjá muninn á fylleríi og grilli.
Æ það er alveg hellingur sem ég gæti sagt frá, Höllu frænku og Tryggva bróa og fleiru, Íslendingunum tveim sem eru hér og hinum nordjobburunum sem eru eiginlega öll frá Svíþjóð, reykingarbanninu á skemmtistöðum og fleiru en ég ætla að láta þetta gott heita í bili.
Kv. Diljá
you make my life perfect- whatever !!!
Get awesome blog templates like this one from BlogSkins.com