Velkomin á Fíknó !
Þú ýtir á litlu myndirnar hér að ofan til að:
Hausinn: Sjá linka á fólk
Taskan: skoða myndalinka
Fæturnir: skoða gamlar færslur
Bakið: Lesa bloggið mitt og COMMENTA
DONT'T WORRY BE HAPPY
Sunday, June 12, 2005
4:50 PM
Liverpool - Amsterdam
Ég held bara áfram þar sem ég hætti síðast...
Var nývöknuð þegar ég skrifaði síðast... klukkann var rúmlega fjögur á föstudeginum og ég og Kiddi kíktum á Krá með hinum krökkunum í húsinu, m.a. John og og kærustunni hans. John er hommalegasti gaur í heiminum en hann veit ekki ennþá að hann er hommi. Á kránni var fínn stemmari. Hún var FULL af fólki, sátum í svona bakgarð þar sem var alveg fullt af svona trébekkjum og borðum og fullt af fólki. Allir að drekka bjór, að sjálfsögðu. Svo var söngvari á svæðinu, söng hástöfum eitthvað lag sem hafði enga laglínu. Heima hefði örugglega eitthver labbað að honum og sagt við hann "haltu kjafti fíflið þitt" en það höfðu bara allir gaman að honum þarna. Svo dillaði hann sér í "takt" við sönginn og baðaði út öllum öngum í tjáningu. Þetta var svona ógeðslega súkkulaði brúnn, snoðaður breti. Ekki leið á löngu þangað til annar léttur breti fór að dansa við sönginn hans. Með sítt hár í hermannagalla og saman tóku þeir lagið New York New York eftir frægan kall. Ég tók þetta allt uppá video og fleiri sýndist mér en mjög gaman. Þaðan röltum við og keyptum eitthvað smá snarl og fórum svo aftur að sofa. Sváfum alveg frá 18 - 22:30 - Þá var nú ekki seinna vænna að halda áfram að drekka. Það leið ekki kortér í Liverpool án þess að ég fengi mér bjór eða hvítvín eða baileys. Fórum á stað sem heitir Bumpers og var eitthvað voða trendy og það er bannað að fara inní kvartbuxum. hehe. Það var strákur með okkur sem heitir Ben, hann var í svoleiðis buxum, samt alveg flottum - bara sumarelgar og hann mátti ekki fara inn... svo hann hljóp heim að skipta.hehe. Á veggjunum voru svona svarthvítar teiknaðar myndir af nautum eða eitthverju sem voru að káfa á pungunum á hvort öðrum og öll með djöflakrossa um hálsinn... Ég var nú ekki alveg að fíla þessar myndir en staðurinn var samt mjög flottur. Það kostar ekkert að drekka þarna. Ég fór á barinn og snapsastaup kostar 120 isl. sterkt staup kostar 240 ísl. og stór bjór svona 200. Á barnum sko. Fórum út í búð um daginn og keyptum okkur 8 Carlsberg (hálfslítra dós)á eitthvern 500 kall. (ekki skrítið að maður drakk mikið).
Röltum aðeins í bænum eftir lokun mjög gaman enduðum reyndar í mjög skuggalegri götu og ákváðum að fara bara heim áður en við yrðum rænd.
Daginn eftir röltum við að skoða dómkirkjuna í Liverpool sem var bara í næstu götu.. hún var geggjað flott - geðveik bygging. Og merkilegt nokk þá er sami maðurinn sem hannaði rauðu bresku símaklefana og kikrjuna...Sami arkitekturinn. Ég tók ENDALAUST AF MYNDUM. Fyrir utan kirkjuna var svona grafhýsi sem mátti ekki fara inní en ef þú labbaðir niðrí garðinn fyrir neðan þá labbaðiru eftir göngustíg sem var með leggsteina á báða vegu...svona næstum einsog grindverk báðum meginn við göngustíginn...soldið skrítið kannski. En við vorum alltof lengi að skoða þessa kirkju, þegar við komum aftur heim hafði ég varla tíma til að pakka, henti öllu bara eitthvernvegin ofan í tösku og tók taxa á John Lennon flugvöllinn. Þar lenti ég í endalausu veseni af því að handfarangurinn var of stór...samt ekkert mjög stór. En ég þurfti þá að endurpakka öllu og setja handfarangurs töskuna ofan í hina og taka eithtvað annað úr í staðinn (á flugvellinum fyrir framan FULLT af fólki) og þegar ég var búin þá var taskan of þung og ég þurfti að taka meira úr... þetta var bara fáránlegt. En þetta gekk. Ég komst til Amsterdam og tók þá lestina til Central Amsterdam - og sú lestarstöð er mjög þekkt fyrir mikið af vasaþjófum. María og Friffi hittu mig svo fyrir utan Pizza Hut á lestarstöðinni og ég var ekki rænd á meðan ég beið.
Svo var bara bjórdrykkja og rölt á eitthverja staði niðrí bæ. fórum á einn sem mynti smá á Coyoty Ugly - eitthverjar stelpur á eiturlyfjum að dansa uppá borði og sveittir strákur sam HÉLDU að þeir væru góðir dansarar. Var svona sér borð fyrir þá sem vildu dansa uppá borði. Samt MJÖG sveittu og sóðalegur staður svo við röltum yfir á næsta stað sem hét NJOY og var mun snirtilegri og góð tónlist og nice stemmari og þar fékk maður líka alveg frið fyrir hinum sem voru þarna. Fólk var bara þarna með sínum vinum og ekkert að troða sér uppá okkur. MJÖG snyrtilegur staður.
Í DAG Í fyrsta skipti var ég ekkert þunn og við fórum á Mc-Donalds - Mc-arannn og svo á GEÐVEIKAN veitingastað sem var rosalega flott innréttaður. á tveim hæðum og bara GEÐVEIKUR. Hann heitir BAZAR og ef þú ert að fara til Amsterdam þá verðuru að fara á hann. Hann var svona indverskur-tyrkneskur-afrískur-arabaþema eitthvað. Risa stórar kristalsljósakrónur ein bleik og ein græn og ein appelsínugul (þ.e. perurnar voru litaðar þannig að þá endurköstuðu þær litnum) og veit ekki hvernig er hægt að lýsa honum fólk verður bara að fara þangað. Ég fékk að borða eitthvað sem heitir Falafel - einhvers konar Tyrkneskar bollur með tyrknesku brauði og sterkri sósu - ég er geðveikt að fara að borða kvöldmat þar líka. Og hann er ekkert dýr - sem er mjög skrítið því þetta er eitthver svona nýr staður og er víst voða tréndí hér í Amster...
Var bara koma þaðan, nördast smá í tölvunni og svo ætla ég uppá þak í rigningunni (það er alveg ausandi útlanda-rigning) og líta í kringum mig. Við erum á efstu hæð í húsinu þannig að frá svölunum er stigi uppá þak og hægt að sitja þar í sumarfíling þegar sólin skín.
Fallegt
you make my life perfect- whatever !!!
Get awesome blog templates like this one from BlogSkins.com