Velkomin á Fíknó !
Þú ýtir á litlu myndirnar hér að ofan til að:
Hausinn: Sjá linka á fólk
Taskan: skoða myndalinka
Fæturnir: skoða gamlar færslur
Bakið: Lesa bloggið mitt og COMMENTA
DONT'T WORRY BE HAPPY
Friday, June 10, 2005
3:06 PM
England og morgunfyllerí
FIMTUDAGUR 9.JÚNÍ :Yndislegur dagur var runninn upp.
Fór á fætur alveg hálf átta og dreif mig í að klára að pakka (flugið var kl. 5 mín í 4)rúntur niðrí bæ þar sem skólabækur voru keyptar og svo var klukkan bara orðin brottför og mamma keyrði mig uppá völl.
Í fríhöfninni verzlaði maður smá alcohol og ilmvatn og svo tylti ég mér með tvo Carlsberg og slappaði af. Nú var stressið búið.
Lenti á London Stansted eitthvað um 9 að staðartíma og tók leigubílinn í rólegheitunum niðrá lestarstöðina sem keyrir til liverpool...
En neeeeiiiii - Síðasta lestin til Liverpool var farin. Næsta færi um hálf 5 eða eitthvað og það tekur sko 4 tíma lestin til Liverpool.
Ég reyndi að finna eitthvað ráð. Alveg uppgefin af þreytu eftir ferðalag og lítinn svefn. Talaði við eitthvern kall sem sagði mér það að ég gæti tekið lestina til Birmingham í kvöld og þar væru svona "waiting lounges" (eitthverskonar biðklefar) og þannig gæti ég sparað mér að kaupa hótel fyrir nóttina. Já þrusugott ég tók lestina til Birmingham og komst að því að "waiting lounges" eru litlir klefar með járnsætum og kannski einum nammisjálfsala. Sá sem ég tyllti mér í var með brúnum rákum á veggjunum sem mig langar ekki að vita hvað var og angaði sterkt af hlandi. já þarna sat ég klukkan 01:00 á fimmtudagskveldi í Birmingham og sá ekki hvernig ég ætti að geta sofið þar. Ef ég hefði sofið hefði hver sem er getað komið og tekið t.d. töskurnar mínar eða e-ð. Ég byrjaði að lesa eina af enskubókunum fyrir skólann en fékk fljótlega leið á því. Þá ákvað ég að skrifa niður ferðasöguna mína og þegar ég var búnað skrifa einsog blaðsíðu þá meikaði ég ekki meir. Fór og fann mér taxa og bað hann að koma mér á eitthvað farfuglaheimili.
Ég fékk herbergi á þessu líka stórglæsilega hóteli. Þegra ég kom inn í lobbýið tók á móti mér lykt sem er örugglega samblanda af fúkkalykt og reykingalyt. Mjög þykk og smekkleg lykt.
Í anddyrinu voru tveir menn og ein kona sem var örugglega vændiskona og þeir viðskiptavinir. Lobbý-klerkurinn fylgdi þeim í herbergið þeirra og kom svo og afgreiddi mig.
Ég fékk tveggja manna herbergi sem angaði alveg eins og gangurinn. Teppið hafði sýnilega ekki verið ryksugað á þessu ári og það var kóngulóavefur á rúmgaflinum. Svo þegar ég var lögst uppí (ath.í öllum fötum...þorði ekki annað útaf óhreinindunum) þá heyrði ég svona dynki úr herberginu fyrir ofan - sem toppaði auðvitað þess dvöl mína alveg. Ég setti saman tvo og tvo og gerði ráð fyrir að fólkið sem hafði verið í anddyrinu hafi fengið herbergi fyrir ofan mig og væru að ríða.
Jæja Ég mætti svo galvösk uppá lestarstöð klukkan 05:00 eftir tveggja tíma svefn, þar sem lestinn átti að fara 05:30. Ég tók lestina og þurfti svo að skipta um lest einu sinni enn áður en ég komst til Liverpool. Þegar ég mætti svo í Liverpool var ég orðin batterílaus en taldi mig muna húsnúmmerið sem ég og geri.
Ég var komin til Liverpool um 8 leitið (föstudagsmorgun sem sagt) og þá var sko byrjað á því að opna bjór og fara á fyllerí, svo þegar maður var orðin vel hýfaður röltum við "laugarveginn" og tókum myndir af hinu og þessu einsog algjörir hálfvitar og stoppuðum á Mc-aranum. Lögðum okkur svo um eitth leitið og núna er ég nývöknuð klukkan 4 og bara eldhress....
Nenni ekki meir... enda ekki meiru að segja frá. Lifið heil og ég bið að heilsa klakanum
you make my life perfect- whatever !!!
Get awesome blog templates like this one from BlogSkins.com