Velkomin á Fíknó !
Þú ýtir á litlu myndirnar hér að ofan til að:
Hausinn: Sjá linka á fólk
Taskan: skoða myndalinka
Fæturnir: skoða gamlar færslur
Bakið: Lesa bloggið mitt og COMMENTA
DONT'T WORRY BE HAPPY
Wednesday, May 11, 2005
10:00 AM
Þriðjudags Djamm
Úff svaka kvöld. Mjög gott. Ég klúðraði ÖLLU í gær ! (ef ég )á að byrja á byrjuninni.
Ég mætti uppí skóla í kl. 9:00 í gærmorgun. Vissi ekki betur en að ég væri að fara í enskupróf. Og Síðar átti að vera prór í uppeldisfræði (kl.13:00). En hvergi fann ég nafnið mitt á listanum sem var í andyri skólans. Og hvergi fannn ég stofu þar sem verið var að prófa í ensku 303. Ef ég á að segja einsog er þá runnu á mig tvær grímur.
Ég HLÓP uppá skrifstofu og þreif í eitt stykki próftöflu sem var þar á rekka. Þá kom í ljós að ég hafði misskilið SMÁ! ?Enska og uppeldisfræði voru í gær ! - á mánudaginn !
Örlítið sjokk fyrir litlu mig sem er nóg stressuð fyrir - því tvö erfiðustu prófin áttu að vera í dag. Heyrðu kemur þá ekki í ljós að frönsku prófið sem ég hélt að væri á miðvikudaginn væri í gær. Svo ég dríf mig heim að læra (hafði b.t.w. 3 tíma til þess). Jú hefði alveg rúllað prófinu upp. EN NEEEEIIIIIII. Ég náði ekki að klára, kunni allt prófið en náði ekki að klára sökum tímaskorts- fullkominn endir á fullkomnum degi !!!
Ég var s.s ?kannski? örlítið pirruð á aulagangi dagsins og fór í sund með Ástu vinkonu. Það var fínasta afslöppun. Mjög fínt. En kitlaði mig enn fremur til þess að gera eitthvað gott úr kvöldinu.
Ég bjallaði í Hugrúnu eftir sund og minntist á kaffihús ? sem henni leist bara fínt á. Kluttutím síðar (eða svo) vorum við byrjaðar að sötra bjór á ellefunni.
Þegar við gengum þar inn var ENGINN ÞAR. Nema jú barþjónninn sem reyndist hinn yndælasti. Kúl strákur, svona töffari einsog maður segir. Fulltaf flottum tattúum og já bara fínasti gaur.
Byrjuðum á einum bjór...og svei mér þá ef einn urðu ekki tveir og tveir urðu þrír...o.s.fr..... En meðan við sátum þarna í horninu komu inn askvaðandi danskir piltar og ekki leið á löngu þar til þeir voru farnir að blanda geði við okkur íslenska kynstofninn. Þeir virtust halda að Ísland væri bara sveitabær. Spurðu hvort við hefðum teppalaggningarmenn og svoleiðis fólk sem væri menntað í eitthverju svoleiðis hér á Íslandi - hvað við gerðum á Íslandi? - af hverju við lifðum? Maður býst við svona viðhorfi frá Bush og þjóð en ekki frá frændum okkar Dönum... Við sátum inná ellefunni sem er flísalögð og spurðum þá hvort þeir héldu að þetta væri allt innflutt. Ji ég er ekki að grínast. Eftir samræður kvöldsins held ég að Danir trompi Ameríkana í heimsku.
?do you have Ice bears in iceland ? when they come here, what do you do ? do you shout them or ??
Ísland er ekki Grænland einsog margir virðast halda ? TO THE DANISH NATION: ICELAND IS NOT GREENLAND ! YOU KNOW ???
Jæja jú það var gaman að þessum samræðum. Gat æft mig aðeins í norskunni og svona. En eftir 4 stóra bjóra verð ég að viðurkenna að ég fann aðeins á mér, get ekki neitað því og Hugrún - þú varst nú bara orðin full ??? (eða hvað er fillerí kannski afstætt)
Danirnir tveir sögðu okkur að þeir hefðu ?to hotel værelser? og mig grunar að þeir hafi ekki verið að leggja til að þeir yrðu í örðu og við í hinu svo við fengum Lilju til að bjarga okkur úr prísundinni. Lilja sem hafði greinilega EKKI verið á staðnum um kvöldið treysti mér til að keyra heim. (auðvitað ekki á hennar ábyrgð samt.) En ég keyrði heim já. Ég hélt reyndar að ég rétt finndi á mér og varla það... þangað til ég fór af stað, þá fann ég alveg smá mun skal ég segja ykkur. En var meðvituð um það og passaði mig gríðarvel á heimleiðinni.
Planið var bara að fá sér einn lítinn bjór og stoppa bara stutt. En þegar barþjónninn sagði okkur að stór kostaði jafn mikið og lítill þá gat maður auðvitað ekki neitað því...þannig að tæknilega séð er þetta allt honum að kenna !
Ingibjörg : Fyrirgefðu að ég kom ekki. Þetta kvöld samt gerði mjög mikið fyrir mig. Ekki búnað gert neitt síðan rétt fyrir páska, fyrsta skipti sem ég skemmti mér eitthvað á þessari önn. Vona að þú fyrirgefir mér ? Þú átt stóran inni hjá mér. (ATH. Þetta er opinber afsökunarbeiðni þar sem allir geta lesið hana.)
you make my life perfect- whatever !!!
Get awesome blog templates like this one from BlogSkins.com