Velkomin á Fíknó !
Þú ýtir á litlu myndirnar hér að ofan til að:
Hausinn: Sjá linka á fólk
Taskan: skoða myndalinka
Fæturnir: skoða gamlar færslur
Bakið: Lesa bloggið mitt og COMMENTA
DONT'T WORRY BE HAPPY
Tuesday, May 03, 2005
12:21 PM
Hæ hó og jibbí jei og jíbbííí jei
Sú var tíðin að maður fékk alltaf níur í öllum prófum. En þá þarf maður víst að vera duglegur á önninni líka, ekki bara fyrir próf.
En fyrir helgi skellti ég mér í bústað og tók Ellu Maju með mér. Við vorum frá föstudegi til sunnudags að læra fyrir sögu 303. Og svo mætti ég galvösk í prófið á mánudaginn. Held ég nái svona 8,8/8,9. Sætti mig við það.
Svo er Saga 203 á morgun. Ef ég á að segja alveg einsog er þá er ég komin með nóg af sögu í bili eftir þriggja daga non-stop lestur. Mundi frekar vilja glugga í enskunni eða eitthvað.
KEYPTI MÉR SÍMA !!!
Flottan síma. Heitir 6230i. Góð Myndavél, video, mp3. Já það er allt í kallinum. Ég kann reyndar á fæst af því. Kann að taka mynd og video. That's it. Það fylgir eitthver minniskubbur með og eitthvað vesen svo ég geti geymt meiri tónlist og eitthvað í honum. Alveg magnað hvað símar eru orðnir tæknilegir. Ég man eftir þegar ég var bara með gamla góða 5110 ! Og dugði svona asskoti vel !
Svo ætla ég að vera sniðug og taka soldið af myndum og taka upp kveðjur frá vinum og vandamönnum og svo þegar ég kem út getur Tryggvi bróðir fengið þessar kveðjur. Jess só klever.
En nú ætla ég að drífa mig niðrí office 1 að kaupa mér diska að skrifa á. Strax eftir próf fer ég í að skrifa alla þá diska sem eiga að fara með til fyrirheitna landsins.
Ég er skroppin. En skrifaðu mér kveðju takk.
you make my life perfect- whatever !!!
Get awesome blog templates like this one from BlogSkins.com