Velkomin á Fíknó !
Þú ýtir á litlu myndirnar hér að ofan til að:
Hausinn: Sjá linka á fólk
Taskan: skoða myndalinka
Fæturnir: skoða gamlar færslur
Bakið: Lesa bloggið mitt og COMMENTA
DONT'T WORRY BE HAPPY
Thursday, May 26, 2005
3:39 PM

Ég minnist síðustu orðanna í síðustu færslu "ekki gleyma eurovision". Núna vildi maður helst óska þess.
Það verður að segjast einsog er að við vorum ekki með neitt frábært lag. Eftir að hafa hlustað á það svona 10 sinnum var ég loksins farin að geta raulað lagið. Ekki beint grípandi. En einsog ég sagði þá taldi ég að gengi okkar í keppninni færi eftir sviðsframkomu, hún þyrfti að vera nógu lifandi og skemmtileg - sem hún var ekki. Minnti helst á framkomuna hjá helmingi laganna og féll algjörlega í fjöldann.
Þó ég hafi ekki verið mjög ósátt með að Ísland kæmist ekki áfram, þar sem við áttum það ekki skilið, þá var ég mjög ósátt við að noregur hafnaði í 9.sæti og Danmörk í 10. sæti. Ég hafði spáð Danmörku 3. sæti, sem þeir reyndar hlutu í forkeppninni. Ég hélt með Noregi en spáði þeim reyndar bara 6.sæti. (Og merkilegt nokk þá höfnuðu Normenn í 6.sæti í forkeppninni) Jæja verður að hafa það, það kemur önnur eurovision og þá verður sko bara skipulagt fimmtudagsfyllerí til öryggis.
En ég hef staðið við það að gera eitthvað skemmtilegt daglega held ég bara. Búnað vera dugleg að sækja sundstaði borgarinnar og kíkja á Star Wars trilógíuna. Fannst ég líka einkar menningarleg þegar ég sat á annarri hæð í pennanum í Lækjargötu í gær, við gluggan sem snýr að götunni og gluggaði í Garfield.
Í dag las ég langan bækling um "aktiviteter" í Oslo, sem ég fékk sendan frá Nordjobb og verður það að teljast til þess skemmtilega í dag þar sem restin af deginum fer í tiltekt og skipulagningu fyrir brottför.
you make my life perfect- whatever !!!
Get awesome blog templates like this one from BlogSkins.com