Velkomin á Fíknó !
Þú ýtir á litlu myndirnar hér að ofan til að:
Hausinn: Sjá linka á fólk
Taskan: skoða myndalinka
Fæturnir: skoða gamlar færslur
Bakið: Lesa bloggið mitt og COMMENTA
DONT'T WORRY BE HAPPY
Thursday, May 26, 2005
3:39 PM

Ég minnist síðustu orðanna í síðustu færslu "ekki gleyma eurovision". Núna vildi maður helst óska þess.
Það verður að segjast einsog er að við vorum ekki með neitt frábært lag. Eftir að hafa hlustað á það svona 10 sinnum var ég loksins farin að geta raulað lagið. Ekki beint grípandi. En einsog ég sagði þá taldi ég að gengi okkar í keppninni færi eftir sviðsframkomu, hún þyrfti að vera nógu lifandi og skemmtileg - sem hún var ekki. Minnti helst á framkomuna hjá helmingi laganna og féll algjörlega í fjöldann.
Þó ég hafi ekki verið mjög ósátt með að Ísland kæmist ekki áfram, þar sem við áttum það ekki skilið, þá var ég mjög ósátt við að noregur hafnaði í 9.sæti og Danmörk í 10. sæti. Ég hafði spáð Danmörku 3. sæti, sem þeir reyndar hlutu í forkeppninni. Ég hélt með Noregi en spáði þeim reyndar bara 6.sæti. (Og merkilegt nokk þá höfnuðu Normenn í 6.sæti í forkeppninni) Jæja verður að hafa það, það kemur önnur eurovision og þá verður sko bara skipulagt fimmtudagsfyllerí til öryggis.
En ég hef staðið við það að gera eitthvað skemmtilegt daglega held ég bara. Búnað vera dugleg að sækja sundstaði borgarinnar og kíkja á Star Wars trilógíuna. Fannst ég líka einkar menningarleg þegar ég sat á annarri hæð í pennanum í Lækjargötu í gær, við gluggan sem snýr að götunni og gluggaði í Garfield.
Í dag las ég langan bækling um "aktiviteter" í Oslo, sem ég fékk sendan frá Nordjobb og verður það að teljast til þess skemmtilega í dag þar sem restin af deginum fer í tiltekt og skipulagningu fyrir brottför.
you make my life perfect- whatever !!!
Tuesday, May 24, 2005
10:01 PM

you make my life perfect- whatever !!!
Wednesday, May 18, 2005
1:52 PM
Jeg er fri !!! Jeg er fri!!!
Var að klára tvö síðustu prófin í dag, gegg bara þokkalega miðað við að ég var ekkert búnað nenna að læra en þetta gekk.
Nú er bara allt að byrja. Planið hefur breyst, ég sá mér ekki fært að fara til Liverpool á saman tíma og brói svo ég reikna með að fara bara til Amsterdam í staðin og heimsækja Maríu Hrund. Sem er MEGA BABÚSKA. Flýg þá bara til London og þaðan til Amsterdam og þaðan til Norge. Jess !
En þar sem það er geggjað veður og komið sumar og ég var búnað lofa sjálfri mér að gera eitthvað skemmtilegt á hverjum degi í sumar þá verð ég víst að drífa mig út og gera eitthvað. Stefni á sund, eða bara að strippa við ljósastaur á bílastæðinu hjá Egilshöll og hlusta á "J'aime la vie".
Er farin í sund með Erlu.
Þú ert feit/ur. Skrifaðu komment. Óskaðu mér til hamingju með að vera búin í skólanum og ekki gleima EUROVISION
Bæ
you make my life perfect- whatever !!!
Wednesday, May 11, 2005
10:00 AM
Þriðjudags Djamm
Úff svaka kvöld. Mjög gott. Ég klúðraði ÖLLU í gær ! (ef ég )á að byrja á byrjuninni.
Ég mætti uppí skóla í kl. 9:00 í gærmorgun. Vissi ekki betur en að ég væri að fara í enskupróf. Og Síðar átti að vera prór í uppeldisfræði (kl.13:00). En hvergi fann ég nafnið mitt á listanum sem var í andyri skólans. Og hvergi fannn ég stofu þar sem verið var að prófa í ensku 303. Ef ég á að segja einsog er þá runnu á mig tvær grímur.
Ég HLÓP uppá skrifstofu og þreif í eitt stykki próftöflu sem var þar á rekka. Þá kom í ljós að ég hafði misskilið SMÁ! ?Enska og uppeldisfræði voru í gær ! - á mánudaginn !
Örlítið sjokk fyrir litlu mig sem er nóg stressuð fyrir - því tvö erfiðustu prófin áttu að vera í dag. Heyrðu kemur þá ekki í ljós að frönsku prófið sem ég hélt að væri á miðvikudaginn væri í gær. Svo ég dríf mig heim að læra (hafði b.t.w. 3 tíma til þess). Jú hefði alveg rúllað prófinu upp. EN NEEEEIIIIIII. Ég náði ekki að klára, kunni allt prófið en náði ekki að klára sökum tímaskorts- fullkominn endir á fullkomnum degi !!!
Ég var s.s ?kannski? örlítið pirruð á aulagangi dagsins og fór í sund með Ástu vinkonu. Það var fínasta afslöppun. Mjög fínt. En kitlaði mig enn fremur til þess að gera eitthvað gott úr kvöldinu.
Ég bjallaði í Hugrúnu eftir sund og minntist á kaffihús ? sem henni leist bara fínt á. Kluttutím síðar (eða svo) vorum við byrjaðar að sötra bjór á ellefunni.
Þegar við gengum þar inn var ENGINN ÞAR. Nema jú barþjónninn sem reyndist hinn yndælasti. Kúl strákur, svona töffari einsog maður segir. Fulltaf flottum tattúum og já bara fínasti gaur.
Byrjuðum á einum bjór...og svei mér þá ef einn urðu ekki tveir og tveir urðu þrír...o.s.fr..... En meðan við sátum þarna í horninu komu inn askvaðandi danskir piltar og ekki leið á löngu þar til þeir voru farnir að blanda geði við okkur íslenska kynstofninn. Þeir virtust halda að Ísland væri bara sveitabær. Spurðu hvort við hefðum teppalaggningarmenn og svoleiðis fólk sem væri menntað í eitthverju svoleiðis hér á Íslandi - hvað við gerðum á Íslandi? - af hverju við lifðum? Maður býst við svona viðhorfi frá Bush og þjóð en ekki frá frændum okkar Dönum... Við sátum inná ellefunni sem er flísalögð og spurðum þá hvort þeir héldu að þetta væri allt innflutt. Ji ég er ekki að grínast. Eftir samræður kvöldsins held ég að Danir trompi Ameríkana í heimsku.
?do you have Ice bears in iceland ? when they come here, what do you do ? do you shout them or ??
Ísland er ekki Grænland einsog margir virðast halda ? TO THE DANISH NATION: ICELAND IS NOT GREENLAND ! YOU KNOW ???
Jæja jú það var gaman að þessum samræðum. Gat æft mig aðeins í norskunni og svona. En eftir 4 stóra bjóra verð ég að viðurkenna að ég fann aðeins á mér, get ekki neitað því og Hugrún - þú varst nú bara orðin full ??? (eða hvað er fillerí kannski afstætt)
Danirnir tveir sögðu okkur að þeir hefðu ?to hotel værelser? og mig grunar að þeir hafi ekki verið að leggja til að þeir yrðu í örðu og við í hinu svo við fengum Lilju til að bjarga okkur úr prísundinni. Lilja sem hafði greinilega EKKI verið á staðnum um kvöldið treysti mér til að keyra heim. (auðvitað ekki á hennar ábyrgð samt.) En ég keyrði heim já. Ég hélt reyndar að ég rétt finndi á mér og varla það... þangað til ég fór af stað, þá fann ég alveg smá mun skal ég segja ykkur. En var meðvituð um það og passaði mig gríðarvel á heimleiðinni.
Planið var bara að fá sér einn lítinn bjór og stoppa bara stutt. En þegar barþjónninn sagði okkur að stór kostaði jafn mikið og lítill þá gat maður auðvitað ekki neitað því...þannig að tæknilega séð er þetta allt honum að kenna !
Ingibjörg : Fyrirgefðu að ég kom ekki. Þetta kvöld samt gerði mjög mikið fyrir mig. Ekki búnað gert neitt síðan rétt fyrir páska, fyrsta skipti sem ég skemmti mér eitthvað á þessari önn. Vona að þú fyrirgefir mér ? Þú átt stóran inni hjá mér. (ATH. Þetta er opinber afsökunarbeiðni þar sem allir geta lesið hana.)
you make my life perfect- whatever !!!
Thursday, May 05, 2005
1:14 AM
Furðufuglinn minn !
Flóki er ekki venjulegur fugl. Hann vill ekki fljúga, takk fyrir. Nei honum finnst það ekki vera kúl lengur.
Ég fer með hann út næstum daglega og aldrei vill hann fljúga. Hann hins vegar er hinn ánægðasti þegar ég set hann á stéttina og labbar útúm allt. Já það er rétt. Ég fer með fuglinn minn í göngutúr. Ef það er skínandi sól þá finst honum rosagaman að labba soldið í götunni okkar - Ég held hann hafi áttað sig á því að við fljúgum aldrei (við mennirnir) og þ.a.l. vill hann heldur ekki gera það. Já það er réttnefni á búðinni sem ég keypti hann í en hún heitir Furðufuglar og fylgifiskar.
Svo er bara próf! próf! próf!
Og mig hlakkar geggjað til að fara út og vil minna alla á að mæta á Eurovision !!! Þá er skyldudjamm hvar sem þið eruð stödd í heiminum. Og þið ykkar sem verðið staðsett erlendis verðið bara að muna að kjósa Ísland !
Ég held ég hafi bara ekki farið á fyllerí síðan , já síðan hvenær ? man það ekki. Ætli það hafi ekki verið.....fyrir páska allavega. Jú það var á staffadjammi nasa um páksana minnir mig... nei hef ekki alveg verið að standa mig í djamminu en tek þetta allt út í sumar með nojurunum.
Komment takk.
you make my life perfect- whatever !!!
Tuesday, May 03, 2005
12:21 PM
Hæ hó og jibbí jei og jíbbííí jei
Ég er BRJÁLUÐ. Ég var búnað skrifa helling þegar browserinn minn klikkaði eitthvað og TARAAAAA ekkert blogg - Sé til hvort ég seti það inn seinna. Hef ekki tíma í þetta !
Var að fá nýjan síma. Hann ef flottur. Skrifaðu komment.
you make my life perfect- whatever !!!
Hæ hó og jibbí jei og jíbbííí jei
Sú var tíðin að maður fékk alltaf níur í öllum prófum. En þá þarf maður víst að vera duglegur á önninni líka, ekki bara fyrir próf.
En fyrir helgi skellti ég mér í bústað og tók Ellu Maju með mér. Við vorum frá föstudegi til sunnudags að læra fyrir sögu 303. Og svo mætti ég galvösk í prófið á mánudaginn. Held ég nái svona 8,8/8,9. Sætti mig við það.
Svo er Saga 203 á morgun. Ef ég á að segja alveg einsog er þá er ég komin með nóg af sögu í bili eftir þriggja daga non-stop lestur. Mundi frekar vilja glugga í enskunni eða eitthvað.
KEYPTI MÉR SÍMA !!!
Flottan síma. Heitir 6230i. Góð Myndavél, video, mp3. Já það er allt í kallinum. Ég kann reyndar á fæst af því. Kann að taka mynd og video. That's it. Það fylgir eitthver minniskubbur með og eitthvað vesen svo ég geti geymt meiri tónlist og eitthvað í honum. Alveg magnað hvað símar eru orðnir tæknilegir. Ég man eftir þegar ég var bara með gamla góða 5110 ! Og dugði svona asskoti vel !
Svo ætla ég að vera sniðug og taka soldið af myndum og taka upp kveðjur frá vinum og vandamönnum og svo þegar ég kem út getur Tryggvi bróðir fengið þessar kveðjur. Jess só klever.
En nú ætla ég að drífa mig niðrí office 1 að kaupa mér diska að skrifa á. Strax eftir próf fer ég í að skrifa alla þá diska sem eiga að fara með til fyrirheitna landsins.
Ég er skroppin. En skrifaðu mér kveðju takk.
you make my life perfect- whatever !!!
Get awesome blog templates like this one from BlogSkins.com