Velkomin á Fíknó !
Þú ýtir á litlu myndirnar hér að ofan til að:
Hausinn: Sjá linka á fólk
Taskan: skoða myndalinka
Fæturnir: skoða gamlar færslur
Bakið: Lesa bloggið mitt og COMMENTA
DONT'T WORRY BE HAPPY
Tuesday, April 26, 2005
6:30 PM
Spliff Donk og Gengja
Ég fór og ætlaði að kaupa mér sima í gær. En nei, það er ekki hægt af því að ég er ekki búin að borga NÝJASTA símreikninginn. Maður borgar hann um mánðaramót. Daaa. Í staðin ætlaði ég bara að leggja það sem ég var með á mér inná símreikninginn í staðin. En neiiii. það er ekki hægt heldur. Allt eða ekki neitt. Ég fór þ.a.l. tómhent út og fór niðrá Löggustöð og ætlaði að borga þeim í staðin. En neiii. Þeir voru búnir að loka. Og þar sem enginn vildi peninginn minn þá ákvað ég allavega að kaupa mér eitthvað gott að borða. Hringdi á Ruby Tuesday og pantaði mjög kaloríu snauðan mat..."Turkey 'n Jack Sandwitch" og "Loaded Chees Fries" (franskar með bræddum osti og bacon bitum. mmm). Svo settist ég heim og ÁT. Ég kláraði auðvitað ekki en djö. var ég södd.
Eurovision stemmarinn fer stigvaxandi og ég er búnað smita eitthverja af vírusnum. Ég mæli með að þið kíkið á eurovision.is og skoðið hin keppnin í forkeppninni, sem kemur til með að vera gríðarlega spennandi.
Fór í munnlegt dönsku próf í dag. Kella gaf mér 8 ! Sagði að ég kynni þetta greinilega allt en vildi ekki gefa mér hærra þar sem ég talaði víst bara Norsku. Öss mér finnst hún ætti hún að horfa fram hjá því ! Finnst það allavega doldið hart að það kosti mig TVO HEILA að tala með norskum hreim.
En ég tek bara einn dag í einu. Fyrst er bara að hlakka til Eurovision. Eftir Eurovision má ég farað hlakka til Liverpool og eftir Pool get ég farið að hlakka til Noregs. Nóg fram undan og ég verð komin með nýjan síma næsta mánudag og þá verður loksins hægt að ná í mig símleiðis aftur.
you make my life perfect- whatever !!!
Get awesome blog templates like this one from BlogSkins.com