Velkomin á Fíknó !
Þú ýtir á litlu myndirnar hér að ofan til að:
Hausinn: Sjá linka á fólk
Taskan: skoða myndalinka
Fæturnir: skoða gamlar færslur
Bakið: Lesa bloggið mitt og COMMENTA
DONT'T WORRY BE HAPPY
Wednesday, April 13, 2005
10:00 AM
Ljúfa Líf, Ljúfa Líf !
Oh ég var að koma úr söguprófi. Lærði mjög vel, það var ekki vandamálið. Og kunni efnið sem ég lærði mjög vel. En þar sem ég sat í prófinu mjög ánægð með það að ég mundi líklegast fá tíu runnu á mig tvær grímur þegar ég fór að átta mig á því að prófið var úr aðeins meira efni heldur en ég hafði lært. Siggi saga sagði að prófið væri úr "síðari heimsstyrjöldinni og kalda stríðinu". Og það er akkúrat það sem ég las. Kalda stríðið var reyndar í byrjun næsta kafla sem ég las ekki allan. En prófið var einmitt úr þessum tveim köflum. Þar sem ég las ekki einsog 40% af því sem var til prófs þá held ég að tían mín breytist í sexu. Bara algjört klúður. En bömmer. Núna sit ég yfir sögubókinni að lesa restina þó það gagnist mér ekki fyrr en í lokaprófinu.
Það er svo stutt eftir af skólanum, mér finnst það alveg frábært og syng með Alfreði Önd "Ég er svo glaður, svo glaður, svo glaður, svo ofsalega glaður" Mér leiðast ekki próf. Að prófunum loknum þá er bara vinna á fullu fram að Eurovision og svo helgina eftir það verður flogið til Liverpool að skála í freyðivíni með bróður mínum sem er búsettur í Noregi og Kidda sem býr í Liverpool.
Svo kem ég aftur heim í tvær vikur áður en ég flyt til Noregs. Og þá byrjar gamanið.
Heimsækja Höllu, Jón Fannar, fá kebabpizzu í Svíþjóð.
Ó ljúfa líf !
you make my life perfect- whatever !!!
Get awesome blog templates like this one from BlogSkins.com