Velkomin á Fíknó !
Þú ýtir á litlu myndirnar hér að ofan til að:
Hausinn: Sjá linka á fólk
Taskan: skoða myndalinka
Fæturnir: skoða gamlar færslur
Bakið: Lesa bloggið mitt og COMMENTA
DONT'T WORRY BE HAPPY
Friday, April 29, 2005
12:02 AM
Atli er alveg Ágætur
...og ágætt er betra en gott. Á-gætt. Eitthvað sem er ofaná gætt (gott) = Meira en gott. Ég er svo gáfuð !
Hsnn Atli ætlar að lána mér gamlan Nokia síma þangað til ég kaupi mér nýjan, þannig að frá og með kvöldinu í kvöld verð ég með síma sem virkar. Get bæði tekið við símtölum og lesið sms án þess að þurfa frysta símann á milli.
Munnlegt frönsku próf í dag. Ég fékk 8,3. Hefði nú getað gert töluvert betur en bara einfaldlega nennti ekki að læra. Búnað vera doldið stress undanfarið. Nýbúnað skila af mér ritgerð um Ray nokkurn Charles Robinson og þurfti bara smá afslöoppun.
Svo eru það bara lokaprófin í næstu viku og það verður svaka stuð nóg að gera.
Er búnað vera velta fyrir mér þema fyrir Eurovision og hef ekki alveg ákveðið mig enn. Kannski væri bara sniðugast að hafa ekkert þema þar sem það er fólk að koma úr öllum áttum og örugglega ekki nema helmingurinn sem tæki þátt ???
Jæja það kemur í ljós.
En skrifaðu mér komment druslan þín !
you make my life perfect- whatever !!!
Tuesday, April 26, 2005
6:30 PM
Spliff Donk og Gengja
Ég fór og ætlaði að kaupa mér sima í gær. En nei, það er ekki hægt af því að ég er ekki búin að borga NÝJASTA símreikninginn. Maður borgar hann um mánðaramót. Daaa. Í staðin ætlaði ég bara að leggja það sem ég var með á mér inná símreikninginn í staðin. En neiiii. það er ekki hægt heldur. Allt eða ekki neitt. Ég fór þ.a.l. tómhent út og fór niðrá Löggustöð og ætlaði að borga þeim í staðin. En neiii. Þeir voru búnir að loka. Og þar sem enginn vildi peninginn minn þá ákvað ég allavega að kaupa mér eitthvað gott að borða. Hringdi á Ruby Tuesday og pantaði mjög kaloríu snauðan mat..."Turkey 'n Jack Sandwitch" og "Loaded Chees Fries" (franskar með bræddum osti og bacon bitum. mmm). Svo settist ég heim og ÁT. Ég kláraði auðvitað ekki en djö. var ég södd.
Eurovision stemmarinn fer stigvaxandi og ég er búnað smita eitthverja af vírusnum. Ég mæli með að þið kíkið á eurovision.is og skoðið hin keppnin í forkeppninni, sem kemur til með að vera gríðarlega spennandi.
Fór í munnlegt dönsku próf í dag. Kella gaf mér 8 ! Sagði að ég kynni þetta greinilega allt en vildi ekki gefa mér hærra þar sem ég talaði víst bara Norsku. Öss mér finnst hún ætti hún að horfa fram hjá því ! Finnst það allavega doldið hart að það kosti mig TVO HEILA að tala með norskum hreim.
En ég tek bara einn dag í einu. Fyrst er bara að hlakka til Eurovision. Eftir Eurovision má ég farað hlakka til Liverpool og eftir Pool get ég farið að hlakka til Noregs. Nóg fram undan og ég verð komin með nýjan síma næsta mánudag og þá verður loksins hægt að ná í mig símleiðis aftur.
you make my life perfect- whatever !!!
Saturday, April 23, 2005
1:31 PM
Blautar Draumfarir
Mig dreymdi Einar Þór í nótt. Gamla Bíó-Einar. Það var reyndar ekkert mjög blautur draumur en við vorum jú eitthvað að kyssast. sko. Tvisvar. Fyrst eitthversstaðar tvö og bróðir hans kom að okkur og var eitthvað að hlæja að okkur. Bróðir hans var reyndar alveg einsog bróðir hans Nonna. Svo lágum við á eitthverju gólfi á háalofti eitthversstaðar að spjalla og kyssast. Jájá Einar þú kyssir bara mjög vel ;)
Þessi var nú samt ekki eins blautur og þegar mig dreymdi Konna. Úff. Það var svo blautt að þegar ég hitti hann daginn eftir í vinnunni varð ég næstum vandræðaleg - En hann hafði ekki hugmynd um hvað við höfðum verið að gera um nóttina.
Ég er búnað vera svo mikið uppí bíó að mig er farið að dreyma bara bíóstrákana. Hver ætli verði næstur ?
you make my life perfect- whatever !!!
Fíknó í nýjum búning !
Breytti soldið til.
Þetta er nú soldið stelpulegra...Kannski OF stelpulegt. Nei nei lillablátt er víst flott !!! Vildi skifta um síðu áður en ég flyt út og hér er hún mætt vel tímalega.
Ég hitti Matthew McConaughey í bíó í gær. Úff hann er svakalegur. Nú þarf Johnny sko að sanna sig til að halda stelpunni.
Sahara er stórgóð mynd. Frábær. Mér fannst hún gríðargóð. Kannski var ég bara blinduð af sjarmanum en bróður mínum fannst mjög gaman að henni líka. Kíkið í bíó !
you make my life perfect- whatever !!!
Thursday, April 21, 2005
2:12 PM
Fíknó óskar landsmönnum gleðilegs sumar
Gleðilegt sumar !
Það er komið sumar og hann Flóki minn er farinn að fljúga aftur, alvöru flugmús !
Ég sendi í gær bréf til Noregs sem innihélt ljósrit af passanum mínum, sakarvottorð, meðmæli frá Míru og eitthvað fleira. Þetta er allt að koma.
Frönskupróf síðasta mánudag - ég fékk 9,8 !
Svo er AKKÚRAT MÁNUÐUR Í EUROVISION Í DAG !
Eurovisionpartýið verður líka kveðjupartýið mitt og fyrsta sumardjammið mitt.
IF I HAD YOUR LOVE
you make my life perfect- whatever !!!
Wednesday, April 13, 2005
10:00 AM
Ljúfa Líf, Ljúfa Líf !
Oh ég var að koma úr söguprófi. Lærði mjög vel, það var ekki vandamálið. Og kunni efnið sem ég lærði mjög vel. En þar sem ég sat í prófinu mjög ánægð með það að ég mundi líklegast fá tíu runnu á mig tvær grímur þegar ég fór að átta mig á því að prófið var úr aðeins meira efni heldur en ég hafði lært. Siggi saga sagði að prófið væri úr "síðari heimsstyrjöldinni og kalda stríðinu". Og það er akkúrat það sem ég las. Kalda stríðið var reyndar í byrjun næsta kafla sem ég las ekki allan. En prófið var einmitt úr þessum tveim köflum. Þar sem ég las ekki einsog 40% af því sem var til prófs þá held ég að tían mín breytist í sexu. Bara algjört klúður. En bömmer. Núna sit ég yfir sögubókinni að lesa restina þó það gagnist mér ekki fyrr en í lokaprófinu.
Það er svo stutt eftir af skólanum, mér finnst það alveg frábært og syng með Alfreði Önd "Ég er svo glaður, svo glaður, svo glaður, svo ofsalega glaður" Mér leiðast ekki próf. Að prófunum loknum þá er bara vinna á fullu fram að Eurovision og svo helgina eftir það verður flogið til Liverpool að skála í freyðivíni með bróður mínum sem er búsettur í Noregi og Kidda sem býr í Liverpool.
Svo kem ég aftur heim í tvær vikur áður en ég flyt til Noregs. Og þá byrjar gamanið.
Heimsækja Höllu, Jón Fannar, fá kebabpizzu í Svíþjóð.
Ó ljúfa líf !
you make my life perfect- whatever !!!
Friday, April 08, 2005
4:53 PM
GOLDIE Í KVÖLD !
...og mig langar GEGGJAÐ að fara. Hann verður að spila á Nasa. En ég er að vinna til ca' eitt í kvöld og lítil von á að eitthver geti skipt við mig um vakt þar sem mér skilst að flestir séu á leið í sumarbústað.
Mig langar svo !!! En það þýðir ekki að gráta Björn bónda. ÉG ER AÐ FLYTJA AF KLAKANUM... nana-nana-nana.
Búnað senda út undirskriftina mína til að staðfesta að ég taki vinnuna ásamt meðmælabréfi frá Sambíóunum. Og þarf svo að senda þeim annað umslag með ljósriti af passanum mínum, sakarvottorð (sem er hreint) og meðmælabréfin frá Tapas og Miru. En ég er enn að bíða eftir að passinn verði til.
Gleði gleði gleði. Og hey Tryggvi bróðir er byrjaður að semja tónlist. Sendi mér lag um daginn sem var bara alveg nokkuð gott.
Svo bíðum við spennt eftir útgáfu Rottunnar, sem vonandi verður gefin út í sumar. Eitthver kann að spyrja sig "Hvaða Rottu?" En þeir sem voru í afmælinu mínu sumar kannast kannski við orðin "Það var einn fagran sumardag, að rottan kom til mín...."
Rottu-ungi
you make my life perfect- whatever !!!
Wednesday, April 06, 2005
12:10 AM
ALLT AÐ SMELLA
Fékk vinnu í dag í gegnum Nordjobb verð að vinna sem "betjent på bomstasjon". Það er þar sem vegatollurinn er. Hehe Kannski ekki draumastarfið en ekki það versta heldur. Skárra en að þjóna þykir mér. Launin eru heldur ekki af verri endanum, 180.000. á mánuði. En vinnan byrjar ekki fyrr en um miðjan júní.
Þ.a.l. VERÐ ÉG HEIMA Á EUROVISION !
Það verður auðvitað partý einsog vanalega. Þar verður margt um manninn og mikið gaman. Gleðibankinn mun hljóma.
Svo skrepp ég til Liverpool í vikunni eftir Eurovision og sletti aðeins úr klaufunum
Gleði Gleði Gleði
you make my life perfect- whatever !!!
Get awesome blog templates like this one from BlogSkins.com