Velkomin á Fíknó !
Þú ýtir á litlu myndirnar hér að ofan til að:
Hausinn: Sjá linka á fólk
Taskan: skoða myndalinka
Fæturnir: skoða gamlar færslur
Bakið: Lesa bloggið mitt og COMMENTA
DONT'T WORRY BE HAPPY
Thursday, March 03, 2005
8:49 PM
Kæru Góðkunningjar
Fíknó býður ykkur velkomin !
Það eru svokallaðir "skóhlífadagar" í skólanum þessa dagana, einskonar þemadagar. Þ.a.l. fór ég á kynningu á "12 sporunum" í gær og í dag fylgdist ég með kennslu 10.bekkinga í Hamraskóla.VEI. Síðan fór ég heim og afrekaði að reka KAKTUS í augað á mér. Er enn aum, rauð og viðkvæm fyrir ljósi en þetta verður ábyggilega orðið fínt á morgun
María í Amsterdam kíkti á Rauða torgið þar í dag. Mig grunar að ástæðan hafi verið atvinnuleyt sem reyndar bar engan árangur.
Sem minnir mig á grein sem ég las á mbl. um daginn. Sjá HÉR. Sjálfri þykir mér ekki erfitt að greina muninn á vínveitingahúsum og vændishúsum, held að stjórnarkerfið í Þýskalandi sé alveg að fara í hundana.
Þegar ég var að leita að þessari frétt sló ég bara inn leitarorðið "þýska" á mbl.is og komst að því að þýskar frétt hljóta að vera alveg ótrúlega fjölbreyttar og afþreyandi. Meðal fyrirsagna sem komu fram í leitinni voru :
-Þýsk kvikmynd um Adolf Hitler vekur deilur
-Þýsk þingkona hvetur til fíkniefnaneyslu og segir heróín skaðlaust
-Ilmandi þýsk jólakort
-Þýsk lögregla handtekur mann í tengslum við naglasprengju í Köln
-Barn auglýst til sölu á eBay í Þýskalandi
-Ben Kingsley sá eiginkonuna halda framhjá á Netinu (konan hans er þýsk)
En nóg um Þjóðverja í bili, þið kíkið bara á mbl.is ef ykkur þyrstir eftir meira þjóðverjaslúðri.
Skrifið mér kveðju og verið velkomin aftur !
you make my life perfect- whatever !!!
Get awesome blog templates like this one from BlogSkins.com