Velkomin á Fíknó !
Þú ýtir á litlu myndirnar hér að ofan til að:
Hausinn: Sjá linka á fólk
Taskan: skoða myndalinka
Fæturnir: skoða gamlar færslur
Bakið: Lesa bloggið mitt og COMMENTA
DONT'T WORRY BE HAPPY
Wednesday, March 30, 2005
7:44 PM
London Baby Yeah !
Var á árshátíð hjá Tapas í gær. Mjög gaman. Fórum út að borða á Hótel borg og ég fékk 10.000.- kr. gjafabréf hjá Iceland Express í happdrætti. Svo var kosið um : Táfýlu, Rass, Brjóst, Bros, Skaphund, Jólasvein og Gufu ársins. Ég hlaut einn titil og fékk að launum hvítvínsflösku og innrammaða viðurkenningu. Svaka stemmari, svo var bara fyllerí og nóg að drekka handa öllum og síðan arkað í partý hjá Steina kokk.
Það var bara ein stelpa sem mætti með myndavél en hún ætlar að senda okkur hinum þær og ég ætla að skella þeim í eitthvað almbúm hérna hjá mér.
Yes yes ! Ég fór mjög sátt heim með gjafabréfið og flöskuna. Svo ég er bara á leiðinni til London að skála í hvítvíni ásamt Tryggva bróður og Kidda.
Viva Eurovision
you make my life perfect- whatever !!!
Thursday, March 24, 2005
2:33 PM
Myndir
Hey var að skella inn nokkrum gömlum og nýjum myndum úr símanum. Smellið hér. Tvö almbúm. Eitt er saga um kisu sem vildi veiða fuglinn minn og ætlaði sko ekki að gefast upp. Prófaði alla glugga, mjálmaði og velti sér og alles. Hitt Almbúmið eru bara gamlar myndir úr símanum. Síðan í jólafríinu og matarboði hjá Gunna og fleira.
Síðan eru linkar á allar gömlu myndasíðurnar undir "myndir" ef þú ýtir á rauða ljósið.
you make my life perfect- whatever !!!
Sunday, March 20, 2005
2:37 PM
Páskafrí og Eurovision
Manni var boðið í tvö afmæli og partý um helgina. Það var bara eiginlega soldið gaman...eða allavega í gær. Kíkti til Atla og Boggu og fórum í bæinn ásamt fleirum og stigum nokkur spor á Hressó.
SÁUÐI GÍSLA MARTEIN ?
Eurovision lagið í ár, If I had your love. Lagið er kannski ekkert frábært í sjálfu sér en samt lag sem ég styð stolt (vonandi) til sigurs. Hér er hægt að heyra lagið. Ég held að þetta lag sé allavega nóg til að koma okkur í aðalkeppnina = mission accomplished.
En allavega þetta var geðveikur þáttur með Gísla Marteini. Það var alveg fullt af gömlum Eurovision-hetjum og þau fóru í svona "Eurovision-gettu betur". Eyvi, Two Tricky, Selma, Birgitta, Jónsi og fleiri fleiri voru á staðnum, Mjög gaman.
Ég er farin að hallast meir og meir að því að vera ekki á landindu á Eurovision. Ýmis plön í gangi sem ég geri skil seinna.
Kíkið á lagið og æfiði sporin fyrir Eurovision.
you make my life perfect- whatever !!!
Friday, March 18, 2005
11:19 AM
IT'S BACK
Já tölvan mín er komin aftur undir mínar hendur. En hún hrundi og glataði ég öllu á harða disknum mínum, þ.e. öll gögn;glósur, ritgerðir, myndir...ALLT-sem ég hef gert síðustu þrjú árin. Ég var örlítið furious fyrst en það þýðir ekki að gráta Björn bónda. Simmi bróðir er frábær og setti nýtt windows í hana og ætlar svo seinna að athuga hvort hann nái eitthverju af gömlu gögnunum mínum aftur með eitthverju spes forriti, svo það er ekki öll von úti enn.
En ég ætla að drífa mig í dönsku tíma, sem er jafnframt síðasti tíminn fyrir páskafrí. Vei !
you make my life perfect- whatever !!!
Wednesday, March 09, 2005
1:10 PM
19. MAÍ 2005
Star Wars og Eurovision
19. Maí verður Star Wars:Episode III - Revenge of the Sith frumsýnd og forkeppni Eurovision verður háð í Kænugarði í Úkraínu.
HITAMÁL !!!
Nú tökum við Íslendingar bara þátt í forkeppni Eurovision á hverju ári í stað þess að detta út annað hvert ár. Þýðir þetta að við fáum aldrei að taka þátt í aðalkeppninni ? Miðað við fyrri frammistöðu Íslendinga má varla búast við því, nema kannski 6.hvert ár eða svo. Þar erum við komin að stóru vandamáli þar sem forkeppnin er haldin á FIMMTUDEGI!
Erum við að tala um endalok Eurovision Partýjanna - einsog við þekkjum þau allavega.
Fólk þarf að mæta í skóla og vinnu á föstudagsmorgnum og þar með mundi öll sú Eurovision stemmning sem m.a. lifnar í miðbæ Rvk. deyja. Þetta er hneisa. Íslendingar VERÐA að farað senda betri lög til keppni !
Ég mæli því með að Íslendingar fari að gera einsog mörg önnur lönd hafa gert. Sent vinsæl og (lands-) fræg bönd í keppni. Þá er ég ekki að tala um söngvara "tískupopp" banda einsog Írafárs eða Í svörtum fötum. Sem dæmi mætti taka Stuðmenn, Sálina, Jagúar og papana. Senda t.d. Stuðmenn í fullum skrúða á Eurovision með Röggu Gísla og Egil Ólafs. í broddi fylkingar. Ég held það yrði til þess að við fengjum allavega að taka þátt í aðalkeppninni í það minnsta.
ÁFRAM ÍSLAND !
Kannski verð ég í Liverpool þennan umrædda 19.Maí.
Aðalkeppnin er laugardaginn 21.Maí og ef við verður þeirrar ánægju aðnjótandi að komast í hana þá verður Eurovision party heima hjá (þ.e.a.s. ef ég verð hérlendis)
Hvort sem þú hefur eitthvað til þessara mála að leggja eða ekki ertu velkomin/n að skrifa mér kveðju í þar til gert Skilaboðakerfi.
you make my life perfect- whatever !!!
Thursday, March 03, 2005
8:49 PM
Kæru Góðkunningjar
Fíknó býður ykkur velkomin !
Það eru svokallaðir "skóhlífadagar" í skólanum þessa dagana, einskonar þemadagar. Þ.a.l. fór ég á kynningu á "12 sporunum" í gær og í dag fylgdist ég með kennslu 10.bekkinga í Hamraskóla.VEI. Síðan fór ég heim og afrekaði að reka KAKTUS í augað á mér. Er enn aum, rauð og viðkvæm fyrir ljósi en þetta verður ábyggilega orðið fínt á morgun
María í Amsterdam kíkti á Rauða torgið þar í dag. Mig grunar að ástæðan hafi verið atvinnuleyt sem reyndar bar engan árangur.
Sem minnir mig á grein sem ég las á mbl. um daginn. Sjá HÉR. Sjálfri þykir mér ekki erfitt að greina muninn á vínveitingahúsum og vændishúsum, held að stjórnarkerfið í Þýskalandi sé alveg að fara í hundana.
Þegar ég var að leita að þessari frétt sló ég bara inn leitarorðið "þýska" á mbl.is og komst að því að þýskar frétt hljóta að vera alveg ótrúlega fjölbreyttar og afþreyandi. Meðal fyrirsagna sem komu fram í leitinni voru :
-Þýsk kvikmynd um Adolf Hitler vekur deilur
-Þýsk þingkona hvetur til fíkniefnaneyslu og segir heróín skaðlaust
-Ilmandi þýsk jólakort
-Þýsk lögregla handtekur mann í tengslum við naglasprengju í Köln
-Barn auglýst til sölu á eBay í Þýskalandi
-Ben Kingsley sá eiginkonuna halda framhjá á Netinu (konan hans er þýsk)
En nóg um Þjóðverja í bili, þið kíkið bara á mbl.is ef ykkur þyrstir eftir meira þjóðverjaslúðri.
Skrifið mér kveðju og verið velkomin aftur !
you make my life perfect- whatever !!!
Get awesome blog templates like this one from BlogSkins.com