Velkomin á Fíknó !
Þú ýtir á litlu myndirnar hér að ofan til að:
Hausinn: Sjá linka á fólk
Taskan: skoða myndalinka
Fæturnir: skoða gamlar færslur
Bakið: Lesa bloggið mitt og COMMENTA
DONT'T WORRY BE HAPPY
Wednesday, February 23, 2005
1:30 AM
KALLINN Í GARÐINUM OG STRÁKURINN Á PLANINU!
Var að lesa bloggið hjá Einari sem minnti mig á kallinn í garðinum. Hef þ.a.l. ákveðið að setja inn tvær stuttar sögur úr veruleikanum sem vonandi einnhver okkar geta lært af (sérstaklega mætti læra ýmislegt af síðari sögunni"strákurinn á planinu")
Kallinn í Garðinum :
En það var þannig að fyrir nokkrum dögum vaknaði ég við þrusk fyrir utan gluggann hjá mér. Heyrði að það var gegnið fram og aftur í garðinum. Klukkan var 8 að morgni og ég helt bara að hann faðir minn væri að sækja einhvað í garðinn, fannst þó skrítið að hann væri að rölta fyrir utan gluggann minn, því þar eru bara tré og ekkert í að sækja. Þegar ég helt að þetta brölt fyrir utan gluggann minn ætlaði ekki að hætta reisti ég mig við og leit út um gluggann. Heyrðu þá stendur bara svartklæddur maður þar beint fyrir framan mig. Ég sé ekki andlitið eða neitt því það var svo dimmt. Mér brá heldur betur í brún og um leið og ég áttaði mig á því að ég væri ber að ofan og að þetta væri maður en ekki bara tré var ég fljót að rífa gluggatjaldið fyrir.
Reirði um mig sængina og hljóp fram "pappi, það er einhver í garðinum". Síðan fór ég inní eldhús og leit útá pallinn og þar stóð maðurinn. Mér fannst hann of "scary" til að þora að glápa en hljóp aftur til pabba "Hann er á pallinum núna" Hann vissi ekkert hvað ég var að fara, en kíkti síðan fyrir utan gluggann minn og þar sást að fótsporin komu alveg uppað glugganum mínum, sem var ansi grunsamlegt, því það var eini opni glugginn.
Þar næst fer pabbi og tékkar pallinn og vitiði menn. Þá er bara slökkviliðið mætt á staðinn. Já pabbi fór og talaði við þá og kom á daginn að einhver hafði hringt í þá útaf ketti sem var fastur uppá þaki. þess má geta að í götunni eru einungis eins og tveggja hæða hús og kettirnir eru alltaf uppá þökum og bjarga sér alveg sjálfir. Að slökkviliðið skuli sinna svona rugli. Ég á ekki til orð.
En þó er mér enn ráðgáta af hverju slökkviliðskallinn var beint fyrir utan gluggann minn því þar er hann kominn langt undir þakskeggið og sér ekkert uppá þak. Hvernig ætlaði hann að finna kött sem væri fastur uppá þaki, undir þakskegginu á húsinu okkar ? Tja mér er spurn.
Strákurinn á planinu (megi sagan verða öðrum víti til varnaðar)
Sunnudagur-morgnstund gefur gull í mund. Eftir morgun verðin var mér litið út um gluggann og sá silfurlitaðan Nissan í innkeyrslunni. Slíkan bíl eigum við ekki. "hver á nissaninn á planinu". svarið sem mér barst "við vitum það ekki alveg, þekkir þú einhvern sem keyrir svona bíl". Nei það gerði ég ekki.
Þegar mamma hafði farið á fætur löngu fyr um morguninn hafði hún séð þennan bíl og hvar honum var á ská yfir bílastæðið og Í GANGI. Eða eiginlega náði bíllinn inná bílastæðið götuna og blómabeðið (skemmdi samt ekki blómin). Hún fór út að kanna hvað gengi á og sér þá hvar ungur maður liggur þar og sefur. Búnað halla sætinu aftur og með opinn munninn í alveg DAUNDRULLUGUM fötum. Já hann var DAUÐUR UNDIR STÝRI OG BÍLLINN ENNÞÁ Í GANGI. Hún ætlar að kalla á lögregluna en fyrst fer pabbi út. Hann vekur strákinn sem sagðist hafa verið að keyra bróður minn heim. hehehe.(merkilegt í ljósi þess að bróðir minn kom heim með taxa og þvertók líka fyrir að þekkja einhvern á silfurlituðum Nissan). Pabbi ákveður að gefa honum séns, sleppa löggunni. Tók af honum lyklana og keyrði hann heim.
Foreldrum mínum var ekki skemmt. En þessi umræddi ónafntilgreindi strákur reyndist síðan vera vinur hans bróa, þeir eru saman í liði. Allt liðið hafði verið að gera sér glaðan dag. Á leiðinni úr bænum fer stráksi með bróður mínum í taxa ásamt fleirum. Bróðir minn er fyrstur út og vissi þar af leiðandi ekki hvað stráksinn gerði af sér. Nei nei, hann vaknar í moldabeði ÚTÍ KIRKJUGARÐI og skítugur eftir því. Hann var búinn að týna jakkanum sínum og rölti heim til sín, sótti bílinn sinn og keyrði heim til okkar þar sem hann draps undir stýri áður en honum tókst að drepa á bílnum.
Stráksi man ekki eftir neinu. Hann man ekki eftir taxanum, hann veit ekki af hverju hann vaknaði í kirkjugarðinum og því síður hvað í ósköpunum hann ætlaði að gera heim til okkar.
you make my life perfect- whatever !!!
Get awesome blog templates like this one from BlogSkins.com