Velkomin á Fíknó !
Þú ýtir á litlu myndirnar hér að ofan til að:
Hausinn: Sjá linka á fólk
Taskan: skoða myndalinka
Fæturnir: skoða gamlar færslur
Bakið: Lesa bloggið mitt og COMMENTA
DONT'T WORRY BE HAPPY
Friday, February 11, 2005
9:25 PM
BRETTAGIRL !!!
Hey mér finnst sætir strákar á brettum vera heavy cool. Fór á bretti í dag með Ellu Maju og það var alveg svaka stuð.
Ætluðum sko að skella okkur beint í stólinn ! En NEEEEEEEIIIIIIIII !!! Við keyrðum uppí Bláfjöll og þar var svo mikil þoka að stóllinn var lokaður. Fólkið sagði samt að ef létti til yrði stóllinn opnaður. Já neinei það var ekki nógu gott og við létum hringja fyrir okkur uppí Skálafell að tékka hvort hann væri opinn þar og já hann átti að opna klukkan fjögur og þar var sko ENGIN ÞOKA, bara sól og fínt veður. Já við auðvitað brunum uppí Skálafell með rykstrókinn á eftir okkur. Og byrjum bara að renna okkur í stólalyftunni. SEM ÉG Í FYRSTA SKIPTI Á ÆVINNI GAT STAÐIÐ Í og fannst það bara peace of cake. Klukkan rétt fyrir fjögur setjumst við að snæðingi og sjáum þegar stólalyftan opnar. VEIIII. Nú skyldi vera gaman. Ca'10 mínútur yfir fjögur rennum við í hlað hjá stólnum og sjáum hvar var búið að strengja band fyrir = það var búið að loka stólnum aftur. Svo standa þarna þrír sætir brettastrákar sem voru ekki alveg sáttir einsog við. En þeir höfðu þó fengið að fara allavega eina ferð með stólnum. Ástæða lokunar var lélegt skyggni !!! Heyrðu maður sá alveg nógu vel og svo eru líka kastarar á stólalyftunni sem maður sér alveg langar leiðir. Haldiði ekki að einhvað fólk hafi farið upp með stólnum og rataði ekki aftur niður svo það hringdi og lét sækja sig. SKÁLAFELL ER EKKI EINSOG ALPARNIR - til að komast niður þá bara renniru þér niður og þá sérðu hvar þú ert. Þetta fólk sem sagt skemmdi fyrir ÖLLUM HINUM. Við höfðum takk fyrir komið frá Bláfjöllum í Skálafell og borgað þar 1200 fyrir lyftukort og fengum ekki að nota stólinn!!!!
Jæja það þýðir ekki að gráta Björn bónda.
Skellti mér á Þorrablót í Staðarsveit á Snæfellsnesi og sletti úr klaufunum. Það var alveg gríðarstemning að dansa við bæði þá ungu og öldnu. Gleðin sveif yfir vötnum og sæluvíma einkenndi blótsgesti. Síðan fórum við í eftirpartý í bústaðinn sem ég og Margrét frænka höfðum aðsetur í. Fólkið mætti í svona hollum. Þrír í einu og síðan héldu allir að við yrðum svona fá og þá fór fólkið og næsti hópur kom. Enduðum fjögur, ég, Margrét og tveir piltar úr sveitinni.
Au Revoir
you make my life perfect- whatever !!!
Get awesome blog templates like this one from BlogSkins.com