Velkomin á Fíknó !
Þú ýtir á litlu myndirnar hér að ofan til að:
Hausinn: Sjá linka á fólk
Taskan: skoða myndalinka
Fæturnir: skoða gamlar færslur
Bakið: Lesa bloggið mitt og COMMENTA
DONT'T WORRY BE HAPPY
Monday, February 28, 2005
6:50 PM
Helgin
London París Róm
Sökum þess að ég fékk nokkur komment á síðustu bloggfærslu ákvað ég að skella nýrri inn. Ég hef þó ekki mikið fram að færa að sinni svo lesendur verða að sætta sig við þetta krafs.Helgin : Laugardagskv.
Sólon- Pravda - Gaukurinn - Hressó - Pravda.
Þetta var ekkert skemmtilegt kvöld. Bara ok. Fór með Heiðu, Telmu, Erlu og Margréti frænku.
Bærinn var hálftómur og lítið um stemmara.
Erað reynað ná sambandi við Maríu Hrund vinkonu mína í gegnum skype. Það er eitthvað vesen með hljóðkort. Tjélla var að flytja til Amsterdam.
Constantine. Ég þangað í kvöld. Ok. Bye
Skrifaðu komment.
Með fyrirfram þökk
H.Diljá
you make my life perfect- whatever !!!
Wednesday, February 23, 2005
1:30 AM
KALLINN Í GARÐINUM OG STRÁKURINN Á PLANINU!
Var að lesa bloggið hjá Einari sem minnti mig á kallinn í garðinum. Hef þ.a.l. ákveðið að setja inn tvær stuttar sögur úr veruleikanum sem vonandi einnhver okkar geta lært af (sérstaklega mætti læra ýmislegt af síðari sögunni"strákurinn á planinu")
Kallinn í Garðinum :
En það var þannig að fyrir nokkrum dögum vaknaði ég við þrusk fyrir utan gluggann hjá mér. Heyrði að það var gegnið fram og aftur í garðinum. Klukkan var 8 að morgni og ég helt bara að hann faðir minn væri að sækja einhvað í garðinn, fannst þó skrítið að hann væri að rölta fyrir utan gluggann minn, því þar eru bara tré og ekkert í að sækja. Þegar ég helt að þetta brölt fyrir utan gluggann minn ætlaði ekki að hætta reisti ég mig við og leit út um gluggann. Heyrðu þá stendur bara svartklæddur maður þar beint fyrir framan mig. Ég sé ekki andlitið eða neitt því það var svo dimmt. Mér brá heldur betur í brún og um leið og ég áttaði mig á því að ég væri ber að ofan og að þetta væri maður en ekki bara tré var ég fljót að rífa gluggatjaldið fyrir.
Reirði um mig sængina og hljóp fram "pappi, það er einhver í garðinum". Síðan fór ég inní eldhús og leit útá pallinn og þar stóð maðurinn. Mér fannst hann of "scary" til að þora að glápa en hljóp aftur til pabba "Hann er á pallinum núna" Hann vissi ekkert hvað ég var að fara, en kíkti síðan fyrir utan gluggann minn og þar sást að fótsporin komu alveg uppað glugganum mínum, sem var ansi grunsamlegt, því það var eini opni glugginn.
Þar næst fer pabbi og tékkar pallinn og vitiði menn. Þá er bara slökkviliðið mætt á staðinn. Já pabbi fór og talaði við þá og kom á daginn að einhver hafði hringt í þá útaf ketti sem var fastur uppá þaki. þess má geta að í götunni eru einungis eins og tveggja hæða hús og kettirnir eru alltaf uppá þökum og bjarga sér alveg sjálfir. Að slökkviliðið skuli sinna svona rugli. Ég á ekki til orð.
En þó er mér enn ráðgáta af hverju slökkviliðskallinn var beint fyrir utan gluggann minn því þar er hann kominn langt undir þakskeggið og sér ekkert uppá þak. Hvernig ætlaði hann að finna kött sem væri fastur uppá þaki, undir þakskegginu á húsinu okkar ? Tja mér er spurn.
Strákurinn á planinu (megi sagan verða öðrum víti til varnaðar)
Sunnudagur-morgnstund gefur gull í mund. Eftir morgun verðin var mér litið út um gluggann og sá silfurlitaðan Nissan í innkeyrslunni. Slíkan bíl eigum við ekki. "hver á nissaninn á planinu". svarið sem mér barst "við vitum það ekki alveg, þekkir þú einhvern sem keyrir svona bíl". Nei það gerði ég ekki.
Þegar mamma hafði farið á fætur löngu fyr um morguninn hafði hún séð þennan bíl og hvar honum var á ská yfir bílastæðið og Í GANGI. Eða eiginlega náði bíllinn inná bílastæðið götuna og blómabeðið (skemmdi samt ekki blómin). Hún fór út að kanna hvað gengi á og sér þá hvar ungur maður liggur þar og sefur. Búnað halla sætinu aftur og með opinn munninn í alveg DAUNDRULLUGUM fötum. Já hann var DAUÐUR UNDIR STÝRI OG BÍLLINN ENNÞÁ Í GANGI. Hún ætlar að kalla á lögregluna en fyrst fer pabbi út. Hann vekur strákinn sem sagðist hafa verið að keyra bróður minn heim. hehehe.(merkilegt í ljósi þess að bróðir minn kom heim með taxa og þvertók líka fyrir að þekkja einhvern á silfurlituðum Nissan). Pabbi ákveður að gefa honum séns, sleppa löggunni. Tók af honum lyklana og keyrði hann heim.
Foreldrum mínum var ekki skemmt. En þessi umræddi ónafntilgreindi strákur reyndist síðan vera vinur hans bróa, þeir eru saman í liði. Allt liðið hafði verið að gera sér glaðan dag. Á leiðinni úr bænum fer stráksi með bróður mínum í taxa ásamt fleirum. Bróðir minn er fyrstur út og vissi þar af leiðandi ekki hvað stráksinn gerði af sér. Nei nei, hann vaknar í moldabeði ÚTÍ KIRKJUGARÐI og skítugur eftir því. Hann var búinn að týna jakkanum sínum og rölti heim til sín, sótti bílinn sinn og keyrði heim til okkar þar sem hann draps undir stýri áður en honum tókst að drepa á bílnum.
Stráksi man ekki eftir neinu. Hann man ekki eftir taxanum, hann veit ekki af hverju hann vaknaði í kirkjugarðinum og því síður hvað í ósköpunum hann ætlaði að gera heim til okkar.
you make my life perfect- whatever !!!
Tuesday, February 22, 2005
7:50 PM
DrómaDagar
Undanfarin vika hefur einkennst af drómadögum. Þ.e. dagar þar sem maður líður áfram í eins konar dróma. Svo einn daginn lítur maður á dagatalið og bara "vá er kominn þriðjudagurinn 22? - hvar er ég búnað vera?".
María er flutt til Amsterdam. YES. hehehe.
Ég fékk 9,7 í dönsku prófinu sem ég gat ekki lært fyrir því ég týndi bókunum mínum. Takk. Takk.
Ég stefni á Nordjobb í sumar ef ég fæ vinnu og svo langar mig líka að fara í heimsókn til Amsterdam (til Maríu) og djemma.vúhú.
Heyriði svo er Skype málið. MARÍA FÁÐU ÞÉR SKYPE. Af því að ef ég er með skype get ég hringt í einhvern annan sem er með skype án þess að borga krónu fyrir það. En auðvitað er það allt í gegnum internetið. Þetta er bráðsnjallt. SKYPE.COM. María. Ég þarf reyndar að kaupa mér svona headset sem ég get talað í líka. En það er í vinnslu.
Mæli geðveikt með þessu. Þetta kostar ekki neitt og þetta er líka fyrir svona spjall einsog msn ! Skype.com - download now
I see you baby...
you make my life perfect- whatever !!!
Sunday, February 20, 2005
1:19 PM
Einar Kaldi
Einar Kaldi sem varað vinna uppí bíó er komin með nýja síðu http://island.hexia.net. Rosa sniðuga. Hann setur inn talskilaboð og alle greier.
Svo er hann líka gríðargóður penni og gaman að lesa bloggið hans. Tékk it át !
you make my life perfect- whatever !!!
Friday, February 11, 2005
9:25 PM
BRETTAGIRL !!!
Hey mér finnst sætir strákar á brettum vera heavy cool. Fór á bretti í dag með Ellu Maju og það var alveg svaka stuð.
Ætluðum sko að skella okkur beint í stólinn ! En NEEEEEEEIIIIIIIII !!! Við keyrðum uppí Bláfjöll og þar var svo mikil þoka að stóllinn var lokaður. Fólkið sagði samt að ef létti til yrði stóllinn opnaður. Já neinei það var ekki nógu gott og við létum hringja fyrir okkur uppí Skálafell að tékka hvort hann væri opinn þar og já hann átti að opna klukkan fjögur og þar var sko ENGIN ÞOKA, bara sól og fínt veður. Já við auðvitað brunum uppí Skálafell með rykstrókinn á eftir okkur. Og byrjum bara að renna okkur í stólalyftunni. SEM ÉG Í FYRSTA SKIPTI Á ÆVINNI GAT STAÐIÐ Í og fannst það bara peace of cake. Klukkan rétt fyrir fjögur setjumst við að snæðingi og sjáum þegar stólalyftan opnar. VEIIII. Nú skyldi vera gaman. Ca'10 mínútur yfir fjögur rennum við í hlað hjá stólnum og sjáum hvar var búið að strengja band fyrir = það var búið að loka stólnum aftur. Svo standa þarna þrír sætir brettastrákar sem voru ekki alveg sáttir einsog við. En þeir höfðu þó fengið að fara allavega eina ferð með stólnum. Ástæða lokunar var lélegt skyggni !!! Heyrðu maður sá alveg nógu vel og svo eru líka kastarar á stólalyftunni sem maður sér alveg langar leiðir. Haldiði ekki að einhvað fólk hafi farið upp með stólnum og rataði ekki aftur niður svo það hringdi og lét sækja sig. SKÁLAFELL ER EKKI EINSOG ALPARNIR - til að komast niður þá bara renniru þér niður og þá sérðu hvar þú ert. Þetta fólk sem sagt skemmdi fyrir ÖLLUM HINUM. Við höfðum takk fyrir komið frá Bláfjöllum í Skálafell og borgað þar 1200 fyrir lyftukort og fengum ekki að nota stólinn!!!!
Jæja það þýðir ekki að gráta Björn bónda.
Skellti mér á Þorrablót í Staðarsveit á Snæfellsnesi og sletti úr klaufunum. Það var alveg gríðarstemning að dansa við bæði þá ungu og öldnu. Gleðin sveif yfir vötnum og sæluvíma einkenndi blótsgesti. Síðan fórum við í eftirpartý í bústaðinn sem ég og Margrét frænka höfðum aðsetur í. Fólkið mætti í svona hollum. Þrír í einu og síðan héldu allir að við yrðum svona fá og þá fór fólkið og næsti hópur kom. Enduðum fjögur, ég, Margrét og tveir piltar úr sveitinni.
Au Revoir
you make my life perfect- whatever !!!
Get awesome blog templates like this one from BlogSkins.com